Kvæði um mánuðina, eins og farið
var með það að Bæjum á Snæfjallaströnd
--------------------------------------
Mörsugur á miðjum vetri
markar spor í gljúfrasetri
Þorri hristir fannafeldinn
fnæsir í bæ og drepur eldinn
Góa á til grimmd og blíðu
gengur í éljapilsi síðu
Einmánuður andar nepju
öslar snjó og hendir krepju
Harpa vekur von og kæti
vingjarnleg og kvik á fæti
Skerpla lífsins vöggu vaggar
vitjar hrelldra, sorgir þaggar
Sólmánuður ljóssins ljóma
leggur til og fuglahljóma
Heyannir og hundadagar
hlynna' að gæðum fróns og lagar
Tvímánuður allan arðinn
ýtum færir heim í garðinn
Haustmánuður hreggi grætur
hljóða daga, langar nætur
Gormánuður grettitetur
gengur í hlað og leiðir vetur
Ýlir ber er byrgist sólin
brosa stjörnur, koma jólin.
(Arnþrúður Kaldalóns fór með
kvæðið svona þann 1.1.1996.)
Sumir hinna gömlu mánaða hófust tiltekinn dag,
í þriðju til fjórðu viku samsvarandi nútíma mánaðar.
Merking: a=alltaf n=nokkurn veginn ó=ónákvæmt.
Mörsugur Vetrarsólstöður n desember
Þorri bóndadagur a janúar
Góa konudagur a febrúar
Einmánuður vorjafndægur n mars
Harpa fyrsti sumardagur a apríl
Skerpla uppstigningard. ó maí
Sólmánuður sumarsólstöður n júní
Heyannir miðsumar n júlí
Tvímánuður höfuðdagur ó ágúst
Haustmánuður haustjafndægur n september
Gormánuður fyrsti vetrardagur n október
Ýlir dagur ísl. tungu # nóvember
Gömlu messudagarnir hafa verið teknir út hér,
sjá nákvæmari heimildir.
mánudagur, 28. desember 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli