Í öðrum löndum hefur lengi tíðkast að kveikja í bálkesti við ýmis tækifæri, svo sem á hvítasunnu, kyndilmessu, Jónsmessu og allraheilagrasmessu. Áramótabrennur virðast samt vera séríslenskur siður.
Ekki er þó vitað til þess að áramótabrennur hafi verið haldnar hér á landi fyrr en á ofanverðri 18. öld. Fyrir þann tíma var timbur og annar eldiviður einfaldlega of dýrmætur til að honum mætti sóa í slíkt. Allra fyrsta dæmið er frá árinu 1791 þegar skólapiltar úr Hólavallaskóla í Reykjavík söfnuðu saman tunnum og öðru timburrusli og kveiktu í á hæð sem þeir kölluðu Vulcan (en vulcan er erlent heiti yfir eldfjall). Hæðin sem um ræðir er sennilega Landakotshæð.
Rúmum 50 árum síðar virðast áramótabrennur (og reyndar þrettándabrennur) vera orðnar nokkuð algengar. Ekki voru þær þó mjög hátíðlegar af lýsingu Klemenz Jónssonar (f. 1862) að dæma og segir hann þar hafa tíðkast mikið fyllerí og ólæti. Á þessum tíma var líka farið að dansa álfadans kringum brennurnar. Sá siður er ættaður frá piltum í Lærða skólanum sem frumsýndu árið 1871 leikritið Nýársnótt þar sem álfar komu við sögu. Þeir tóku sig svo til á gamlárskvöld, ásamt stúdentum þaðan og frá Kaupmannahöfn, og klæddu sig upp sem ljósálfa eða svartálfa, gengu niður að Tjörninni í Reykjavík með blys í hönd, dönsuðu og sungu álfasöngva.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli